100% ÍSLENSK FRAMLEIÐSLAFÆST Í SKÍFUNNI, 12 TÓNUM, SMEKKLEYSUHAGKAUP, ELKO, MAX...♪♫♪♫♪♫♪♫♪♫♪♫♪♫ÁST & FRIÐUR,STEED LORD
Ola chica. Vamos A La Playa, you playa!
~ Hið opinbera Ítaló Diskó kvöld Íslands ~
Ítaló diskó, electro, synthpop, new wave og allskonar skemmtilegt. Kíktu endilega í stuðhittara, svalandi drykk og dáldinn dans.
ps. » sæktu mixdiskinn "Ítaló Diskó #1"
Le Terrible Disco pou nas pais un Italo Disco!
Hola!
Ítalókvöld #2 verður á Barnum (Laugavegi 22) á morgun, föstudanskvöldið 3. ágúst, og hefst stundvíslega kl. 23.59!
Það var ótrúlega gaman síðast. Landsliðið í Ítalódansi mætti eins og það lagði sig, dansandi uppá borðum og stólum og skrækjandi af gleði við vel heppnaðar skiptingar. Við metum það mikils, og hlökkum til að sjá miiiiklu fleiri dansa annað kvöld.
Svenni (Dj Forever Lover) og Halli (Dj Shy Like An Angel) eru hvað frægastir fyrir leynilegt bréfasamand sitt við Giorgio Moroder, að hafa lúppað Rydeen-hrossaintróið og droppað því þegar það var sjóðheitt, og fyrir fágætt bragðskyn og hágæða lagaval undir miklum þrýstingi.
Til að koma öllum í dansigírinn flugum við með Arnarflugi til Sitges og fengum afnot af mest móðins hátæknigræjum tilað skapa besta mixdisk sem skapaður hefur verið síðan Max Mix bræðurnir voru uppá sitt besta:
Komdu á Barinn, pantaðu suðrænan svaladrykk, hnepptu frá skyrtunni/kjólnum/þjónabúningnum, strengdu bindið yfir ennið, ýttu evróhippunum frá, og kondað dansa!
Á myspace.com/italodisko er hægt að sjá skemmtileg Ítalómyndbönd, og hitta og ræða við aðra áhugamenn um skemmtilega tónlist. Og á icomefromreykjavik.com/kontrapunkt er fullt, fullt af eðals Ítaló Diskó til hlustunar.
Sjáumst!&